Þórey Birna

tíminn flýgur áfram og hann teymir mig á eftir sér

16.04.2007 22:17:04 / torey

Apríl segiði

já það er víst kominn Apríl og ég afrekaði að blogga ekkert í Mars. Góður árangur það!! já takk

ég er að hugsa um að stofna antiblogg...mér leiðist að lesa blogg og að skrifa þau. þeir sem vilja frétt frekar af mínum högum og staðsetningu mína á landinu fagra, þar sem ekki stendur til að yfirgefa það, geta náð í mig á MSN-í GSM-með EMAIL-HEIMA á AK- HEIMA á BFEY-HEIMA í FBÆ-

Þetta blogg er farið í frí um óákveðin tíma:)

biddan kveður-veit ekki hvenær hún mun heilsa á ný

7ĬČ

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 22:41:04 / torey

maðurinn fór út um gluggann

Ég sat í mestu makindum í stofu 21 í Þingvallastræti í dag og hlustaði á fyrirlestur um börn með fatlanir. Ég og bekkjarfélagar mínir áttum okkur einskis ills von þegar maður kemur inn í stofuna með skóflu og spyr hvort hann megi fara ÚT UM GLUGGANN??? Kennaranum fannst þetta hinn eðlilegasti hlutur og maðurinn vippaði sér upp á borð og út um gluggann með skófluna í annarri. Fyrirlesturinn hélt áfram og við vorum löngu búin að gleyma manninum þegar hann steig inn um gluggann aftur. Smástund leið og maðurinn kom aftur vopnaður hamri og skrúfjárni og fór eins og fyrr út um gluggann. Alltaf hélt fyrirlesturinn áfram og við kipptum okkur ekkert upp við einkennilega hegðun mannsins. Stutt stund leið þar til kona birtist með fulla fötu af vatni, hún rétti gluggamanninum fötuna og hann fór með hana, kom stuttu síðar og bað hana um annan skammt. Hún hlýddi og stuttu síðar hurfu þau bæði á braut.

 já segiði svo að það gerist ekkert spennandi í Þingvallastrætinu

Biddan kveður-gluggamaðurinn ógurlegi


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 11:45:32 / torey

tími á blogg

já ætli það sé ekki komin tími á blogg.

hvers vegna??

  • vegna fjöldaáskoranna (lygi)
  • vegna þess að Borgfirðingum hefur fjölgað síðan ég bloggaði síðast (satt)
  • vegna þess að það er rúmur mánuður síðan ég bloggaði síðast (satt)
  • vegna þess að það er almenn kurteisi við lesendur að blogga einu sinni í mánuðir (satt)
  • vegna þess að mig langaði til þess (Satt/lygi)

æi ég nenni ekki þessu ruglið, það er lítið að frétta. Ég var fyrir austan um helgina og eyddi laugardeginu með miðju-bróðursyninum á Ístölti á Eiðavatni. Það var skemmtun hin mesta, þar var saman komin hálf Steinsvaðsættin, sá hluti sem er sýktur af hrossaveiki og margt annað skyldfólk mitt sem og fjöldinn allur Borgfirðinga.

En talandi um Borgfirðinga þá erum við einum fleiri í dag en í gær, Borgfirðingar eru samkvæmt Hagstofu Íslands 146 og mun það vera rétt tala. Jón og Freyja frá Grundum eignuðust 16 marka strák í dag:D

jæja

Biddan kveður- lofa bót og betrun í bloggheiminum

p.s. "Bidda, mig langar í sonna hett (hest)" -"og hvar ætlaru að hafa hann??" "Ég setti hann bara í gábinn(skápinn), bara í hilluna!!"

jahh hver getur ekki haft hest í skápnum, Lína Langsokkur gat það!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 14:33:24 / torey

hvað er að frétta!!!

jahh segðu mér allt af létta

ég hef nú verið að skvetta

úr klaufunum og talið mig netta

í að komast á lista og bretta

upp ermar og nefið fetta

framan í þá sem ekki fletta

bókum og blöðum. Detta

í það og metta

áfengismagnið í blóði.

Biddan kveður-ekkert að frétta!!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 02:22:09 / torey

jólahvað

það er sennnilega við hæfi að óska tíðum lesendum síðunnar sem og þeim sem slæðast hér inn við og við gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári, megi framtíðin verða ykkur gæfurík og giftusöm.

Biddan kveður - komdu með mér í gamlárspartý....lalala.


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 11:04:05 / torey

prófapartý og jólaskap

já prófin eru allsráðandi en ekki má samt gleyma jólastemmaranum

og í tilefni af  kosningarbaráttunni um áttunda sætið:)

Biddan-kveður fortíðarþrá


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 08:37:03 / torey

AAAAAAAAAARRRRRRRRRRGGGGGGGGGGGG

AAAAAAARRRRRRRRRGGGGGGGGGGG!!!

Hvað er minna hressandi en ÁREKSTUR í morgunsárið!!!

Ég er allavega sár og hef ákveðið að flytja út í sveit og ferðast bara um á traktor, þá sér allavega ekki á mínu ökutæki ef ég lendi í árekstri!!!

Biddan kveður- SATAN


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 23:32:26 / torey

næsta ædol Framsóknarmanna

Gæti ég orðið næsta Ædol Framsóknarmanna, ég meina Simmi Vill vildi ekkert með það hafa þó svo að pabbi hans hefði kennt Jóni Sigurðssyni...HAaAaaa hann kenndi mér og öllum sem er á aldri við mig...hefu Villi rektor lifað í rúm 100 ár!!

En svo að ég komi mér að kjarna málsins þá hef ég gefið kost á mér í 8. sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi. Þó svo að mér hafi ekki verið boðið að vera Ædol flokksins.

Margir hafa spurt afhverju 8. sætið? en ekki 5.-8. eins og er svo algengt og við því er svar. Mér er ekki sama hvaða sæti ég fæ ég býð mig ekki fram í 1.-10. sæti bara svo að ég fái eitthvert sæti. Ég íhugaði að bjóða mig fram í 6. sæti sem þýðir hugsanlega annar varaþingmaður, fer eftir því hversu mörgum mönnum við náum inn, en mér fannst það of mikilpressa. Það að bjóða sig fram í 8. sæti sýnir að ég hef áhuga þó svo að ég sé ekki tilbúin og hafi ekki reynsluna til að gegna veigamiklum störfum. Ég vil 8. sætið!!

En annars er ég bara í prófum núna og ekki mikið að frétta af Eyrinni annað en það að ég verð árinu eldri þann 10. desember og ÞÚ...JÁ ÞÚ...ef þú ert ekki búin að kaupa afmælisgjöf handa mér og setja hana í póst, ef þú ætlar ekki að færa mér hana í eigin persónu, þá getur þú gleymt því að ég hlusti á þig þegar ég verð komin á ÞING!!!!

Nei...djók

Biddan kveður-ég er skotin í þér...Halldó...Jón Sigurðsson,...ég er skotin í öllum Framsóknarmönnum (Litríkir Postular, bregðast aldrei)


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.11.2006 18:16:25 / torey

nú er allt að ske!!!

Ég og stöllur mína í Leikskólafræðinni erum að meika það um þessar mundir...ætli það sé ekki bara Sirrý og Ísland í bítið næst. Maður spyr sig??

En tjekkið á stelpunni....http://veftivi.visir.is/veftivi/main.do?treeId=19001&progId=27053&itemId=23054

Biddan-gott eða slæmt???


» 8 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 17:12:44 / torey

Hvað má og hvað má ekki??

Við daglegt yfirrennsli mínu á Fréttablaðinu í dag rakst ég á tvennt sem að vakti sérstakann áhuga minn.

Annars vegar var það hvað má og hvað má ekki skíra börn. Hvað varð um að skíra Einar í annan hvorn lið og Jón í hinn; Einar Jónsson, Jón Einarsson, Einar Jónsso..... þið skiljið hvað ég á við. Nei það gagnast fólki ekki í dag, jú það kemur reyndar fram í greininni að Jón og Guðrún séu tvö algengustu nöfnin á Íslandi í dag, en það er kannski ekki höfuðmálið. Ég get sagt ykkur það að afi minn hét Björn Arnarr Ágústsson, Arnarr með tveimur r-um og það er ekki eins og Snævarr; ekki ættarnafn. Þegar að bróðir mömmu lét skíra strákinn sinn vildi hann að strákurinn bæri nafnið Arnarr eins og pabbi hans gerði en á það var ekki fallist. Þegar strákurinn fermdist sótti hann um að fá að breyta nafninu úr Arnar í Arnarr. Hey þetta er eitt R það skiptir ekki svo miklu máli fyrir nefndina en heilmiklu máli fyrir hann en samt fékk hann ekki vilyrði fyrir því.

Mannanafnanefnd er falið að vinna eftir ákveðnum reglum, svo sem að:

  • Nafnið þarf að geta tekið íslenskri eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  • það má ekki brjóta í bága við íslenskt málkerfi
  • það skal ritað í samræmi við íslenskar ritvenjur nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • það má ekki vera þannig að það geti orðið þeim sem ber það til ama.
  • Stúlkur mega aðeins bera kvennmannsnöfn og strákar mega aðeins bera karlmannsnöfn.

jú þetta er svo sem allt gott og gilt og nefndin vinnur sennilega sína vinnu eins og hún best getur en maður spyr sig hvort að karlmannsinöfnin Austri (íþróttafélag á Eskifirði og fyrrum fjórðungsblað Austurlands) og Annar (Annar Ágúst eða Annar Júlí) séu ekki nöfn sem að ,,geti orðið þeim sem ber það til ama´´ eða þá kvennmannsnöfnin Konkordía, Ninja, Tala nú eða það allra heitasta í dag Jökla séu ekki nöfn sem verði viðkomandi til baga í framtíðinni. Það verður sennilega mjög gaman fyrir hana Jöklu litlu að sitja sögutíma í fimmta bekk og heyra það að hún hafi verið stíflu og þurrkuð upp árið 2006.

Vegna lengdar þessa pistils verður gert örstutt hlé og þið getið rétt úr ykkur

Við verðum að hugsa um hvað við erum að skýra börnin okkar, við skulum ekki skýra þau í höfuðið á Paris Hilton, Naomi Campell eða David Beckham, þau verða ekki töff þegar barnið verður komið á fermingaraldurinn. Jón og Gunna eru gömul og gild nöfn og þó svo að barnið okkar sé það fallegasta og besta sem fæðst hefur inn í þennan heim þá getur það alveg borið sama nafn og tveir aðrir, við höfum jú úr 11.826 mismunandi nöfnum að velja og það má skýra allt að þremur nöfnum þannig að reynið bara að velja úr þessum lista og hættið að bögga mannanafnanefnd með nöfnum eins og Engifer (er það ekki í jólakökurnar, eins og kanill), Spartakus, Veronica (Mars þá??) eða Axel og Örn sem kvennmannsnöfn. Það er ekki töff.

Hitt málið er á baksíðunni: Bakþankar Gerðar Kristnýjar. Væri heimurinn ekki betri ef að það væru líka konur á umferðaljósunum í stað þess að þar eru bara karlar?? Sennilega myndi heimurinn vera langtum skárri en það myndi flækja umferðarkennsluna talsvert, í stað þess að mega fara yfir á grænukalli og verða að bíða á rauðumkalli. Þá þyrftum við að verða að stoppa á rauðumkalli eða rauðrikonu og við mættum fara yfir á grænumkalli og grænnikonu og svo þegar að krakkagreyin væru komin út á Glerárgötu og ætluðu að fara yfir götuna þá myndu þau ekki hvort að maður átti að stoppa á kalli eða konu eða rauðum eða grænum eða rauðum kalli og grænni konu eða rauðri konu  og grænum kalli. Eins og þið sjáið þá yrði þetta bara ein allsherjar flækja, þess vegna, þrátt fyrir skemmtilegan pistil Gerðar, held ég að við ættum að einbeita okkur að einvherju aðeins mikilvægara en því hvort að það eigi að vera karlar eða kerlingar á götuvitunum.

En ef að ætti að breyta þessu gætum við þá kannski fengið lime-græn og bleik í stað rauðs og græns???

Biddan-vel lesin í dag


» 11 hafa sagt sína skoðun

08.11.2006 23:39:37 / torey

Minning

Þegar ég heyri þetta lag núorðið, spretta fram tár. Mér finnst þetta viðeigandi í tilefni dagsins, þeir skilja þetta sem eiga að gera það.

Skömmu áður en vindurinn sofnar uppi á hæðunum

eins og morgundöggin sprettur svitinn fram.

Andartaki áður en nýr dagur kemur með póstinum

ákveður sólin að hylja sinn harm.

Og ég veit að ég þarf að leika sama leikinn,

veruleikinn er eins og gömul mynd.

Ég sest niður með kaffi, set Bowie á fóninn.

Þitt uppáhalds lag var "Wild is the wind".

Öll þessi ár sem gáfu okkur það sem aðrir óskuðu sér.

Elskendur í stormi sem aldrei sáu að ástin var aðeins blindsker.

Ég geng sömu götununa, hitti sama fólkið,

geri sömu hlutina og ég gerði með þér.

Þó dagurinn sé sá sami er það ekki sama nóttin,

því nóttin var okkar tími til að byrja með.

Og ég veit að ég þarf að leika sama leikinn,

veruleikinn er eins og gömul mynd.

Ég sest niður með kaffi, set Bowie á fóninn.

Þitt uppáhalds lag var "Wild is the wind".

Biddan kveður - stutt á milli gleði og sorgar


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 13:09:40 / torey

helgin í hnotskurn

...hnotskurn, hvað er það....á þetta ekki að vera hnetuskurn en það er önnur saga!

Markmið helgarinnar: LÆRA

vikan flaug hjá og ég missti eiginlega af henni, var að vinna á föstudaginn og kom heim og rotnaði við að læra, þegar ég var við það að klára það var ég að hugsa um að henda mér fram af svölunum, við skulum bara orða það að þetta hafi ekki gengið vel.:^)

Laugardagur:

  • vinna
  • kaffi hjá Elsu og Kjartani
  • Kjúklingur hjá Damms og Ninna
  • Innflutningspartý hja Öbbu og Hauk
  • Ásgeir Kolbeins og sirkus rvk mættu í teitið
  • buðu okkur í Sjallann
  • Teitið var óstöðvandi
  • Búkolla
  • Kúr hjá Elsu og Kjartani
  • Heim að sofa

já þið lásuð rétt, Utvarpsstöðin VOICE auglýsti í vikunni að hún ætlaði að bjóða skemmtilegasta partýinu í Sjallann á Sálina og Haukur og Abba unnu keppnina, fengu fjóra kassa af Grolsch og allir í teitnu fengu frítt í Sjallann, ohhhh þetta var gleði, gleði. Vonandi ykkar vegna voruð þið ekki að hlusta á VOICE á laugardagskvöldið og vonandi ætlið þið ekki að SIRKUS RVK framar.

en Sunnudagurinn ber margt í skauti sér, hér er ofsaveður en restin af síðuhverfinu er sennilega mjög sátt með að bananablokkirnar taki af allt ofsaveðrið...jájá ég er líka glöð að það skuli bylja á svalarhurðinni svo að sjónvarpið þarf að vera í botni og maður verði að öskra til að geta átt samskipti við næsta mann.

hressandi

Bidda-markmið eru eins og áttavitar, aðeins til leiðsagnar


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.10.2006 15:47:24 / torey

tvö á dag...

...koma skapinu í lag.

Nei ég hef ekkert bloggað landa lengi en nú blogga ég oft á dag...jæja einhvertímann hlýt ég að finna milliveginn.

En ég varð bara að blogga til að segja ykkur að fyrir nákvæmlega 1 klst eignaðist ég nýjann bíl!!!! JEI...hann er fallega rauður Toyota Avensis árgerð 2001 og hann er bara fallegur, hvað get ég sagt.

Ef þið mætið Corollunni minni gömlu, ekki vera feimin við að vinka þó að við séum ekki á henni, vegna þess að hún Freyja mágkona mín keypti hana og ekur nú allt eins og herforingi

Jæja ég varð bara að deila þessu með ykkur:)

Biddan kveður að sinni-bíleigandi á ný


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.10.2006 11:28:51 / torey

jólin á næsta leiti

krakkar mínir komiði sæl ég er jólasveinninn!!!!

ARG..... er ekki óþarfi að vera búin að skreyta allt og það er ekki kominn nóvember. Allt er ljósum og greinum prýtt í Hagkaup og Glerártorg á ekkert eftir nema að kveikja á sínu skrauti. Ég geri mér grein fyrir að Reykvíkingar eru löngu búnir að halda jólin og eru farnir að spá í páskaskrautinu en HALLÓ ég sem lifði í þeirri trú að Akureyringar væru bara vesælir landsbyggðarnördar eins og ég og vildu ekkert með jólin hafa fyrr en í desember en þau voru haldin þá í gamla daga. ...ég hef reyndar löngum verið talin frekar gamal dags.

En...hvað er að frétta?? ég fór austur um helgina og stoppaði þar innan við sólarhring sem var ansi skemmtilegt. Afmælið hjá Steinþóri mínu var svona líka helvítið magnað og þar voru mættir allir helstu kappar austurlandsins en þá dreif að víðsvegar að af landinu. Ég sá púka eitt og tvö og hitti mágkonu mína en bróðir minn hafði dregið bakveikan tengdaföður sinn með sér á rjúpnaveiðar í þokunni og hafði tengdafaðir hans á orði hvort hann væri með tækið (gps) bróðir minn kvaðst ekki vera með það, þannig að tengdafaðir hans sagðist ekki fara með hann út af bílaplaninu nema í spotta. (þið sem ekki þekkið til þá týndist bróðir minn á rjúpnaveiðum fyrir 6-7 árum síðan og var hans leytað í um 9 klst og síðan þá hefur þetta alltaf verið viðkvæðið þegar farið er á rjúpu, að það sé best að hafa hann í bandi) hehehehe

Hey....ég á engan bíl, ekki í gær og ekki í dag...mér líður eiginlega hálf undarlega. í gær hringdi ég í dammsínu til að biðja hana að taka mig með í búð þar sem að hér var allt matarlaust og mér leið eiginlega eins og gamalli konu. Var að spá í að hafa sambandi við BSO, því að ég veit að þeir keyra aldraða alltaf í Hagkaup á morgnanna, og fá að fljóta með....en vonandi verð ég búin að eignast bíl í þessari viku.

Biddan kveður að sinni-on fire í blogginu


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.10.2006 01:35:30 / torey

Blogg...hvað er það???

Einu sinni fyrir langa löngu heyrði ég fólk tala um eitthvað sem kallast blogg. Það virðist vera einhverskonar dagbók sem fólk skrifar á netið svo aðrir geti lesið og haft gaman af. Það er eins og mig minni að ég hafi verið með svona síðu en ég man samt ekki eftir að ég hafi nokkurtímann munað eftir að skrifa eitthvað markvert á hana, eða kannski bara nokkuð yfir höfuð. Ég hafði margoft lofað bót og betrun og sótt allskyns námsskeið til að læra að skipuleggja bloggtíma minn, en ekkert virkar, þannig að þið verðið bara að sitja uppi með það að ég bloggi á mánaðarfresti.:) það er eiginlega bara helvíti hressandi. Ég er samt búin að læra nýtt trix sem felst í því að setja inn nýtt look á síðuna þannig að þið takið ekki eftir að ég hef ekkert sagt í heilan mánuð og ekkert sagt að viti í þessu bloggi. En það er margt hressandi að gerast í lífi mínu þessa dagana, ég tók á móti stórfjölskyldunni minni um síðustu helgi og það gist allir hjá mér, allir sem þýðir þá níu í heildina með mér og Daða. Það fór ljómandi vel um alla, því að þröngt mega sáttir sitja (og liggja). Annars gengur lífið þessa dagana út á að kvíða fyrir prófum og jólum sem virðast vera handan við hornið og prófpúkinn er mættur með horn og hala og manneskjan ekkert búin að vera ofdugleg að lesa þetta misserið, en það lagast, Föstu punktarnir í lífi mínu eru skóli á miðvikudögum og fimmtudögum, Vínbúðin á föstudögum og sem flesta laugardaga og þá er það upptalið, fyrir utan Daða en hann virðist alltaf vera fastur punktur í lífi mínu og honum virðist ekki vera haggað þaðan hvað sem ég geri!! Það sem mér leiðist mest er það að ég hef ekki komið heim á Borgarfjörð í 8 vikur og ekki austur í 6 en það mun allt lagast...eða flest á morgun þar sem að ég mun skruna ásamt fögru föruneyti í Skjöldólfsstaði í afmæli og á ball og síðan í EGS. um nóttina en ætli fjörðurinn fagri verði ekki að bíða betri tíma:( í fréttum er samt það helst að við erum búin að selja bílinn okkar og þeir sem eru til í að skutla okkur og taka okkur með á rúntinn eru vinsamlegast beðnir að hafa samband, annars verðum við bara hjólandi þar sem eftir er vetrar, vonandi verður hann snjóléttur. Nei þið þekkið mig nú betur en þetta þar sem að mitt mottó er að maður fer ekki labbandi það sem maður kemst á bíl, en við erum að kaupa nýjan bíl í næstu viku, Toyota Avensis 2001 fallega rauður og indislegur í alla staði. En nú verð ég sennilega að fara að sofa í hausinn á mér, eins og hún móðir mín er vön að segja. Biddan kveður-sátt með að vera búin að blogga

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5